Verðlaun fyrir vígalegustu mottuna á Karlatölti Andvara
Yfir 60 karlar hafa skráð sig í Karlatölt Andvara sem fram fer nk. föstudag 25. Mars í reiðhöll Andvara.
Fram kemur í tilkynningu frá Andvara að vegleg verðlaun séu í boði t.d. kerrumyndavél fyrir 1. sæti í öllum flokkum og spónabalar frá Sponn.is. Einnig verða sex efstu sætin í öllum flokkum sett í potti og dregið verður um folatolla undir Mídas frá Kalbak, Gletting frá Stóra-Sandfelli og Víði frá Prestbakka.
Einnig verða veitt vegleg verðlaun fyrir mottu mótsins.
Enn geta karlar skráð sig til leiks í gegnum síma 660-1818 og 893-4425.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH