Vesturlandsdeildin – Siguroddur efstur í slaktaumatölti
Siguroddur Pétursson og Eldborg frá Haukatungu Syðri I. Mynd: Brynja Gná Heiðarsdóttir.
Í gær fór fram keppni í slaktaumatölti í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum. Siguroddur Pétursson kom, sá og sigraði á hryssunni Eldborg frá Haukatungu Syðri I með einkunnina 7,20.
A-úrslit
1: Siguroddur Pétursson – Eldborg frá Haukatungu Syðri I – 7,20
2-3: Anna Björk Ólafsdóttir – Eldey frá Hafnarfirði – 6,91
2-3: Hrefna María Ómarsdóttir – List frá Múla – 6,91
4: Elvar Logi Friðriksson – Griffla frá Grafarkoti – 6,67
5: Arnar Máni Sigurjónsson – Arion frá Miklholti – 6,62
Snorri Dal á Bálki frá Dýrfinnustöðum vann B-úrslitin með 6,75.
Lið Stelpnanna í Slippfélaginu og Kerckhaert varð stigahæst liða.

Næsta keppnisgrein í Vesturlandsdeildinni er gæðingafimi og fer sú keppni fram 25. mars nk.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH