Norðurlandamót Viðar Ingólfs reið á vaðið

  • 8. ágúst 2024
  • Fréttir

Viðar og Týr á æfingu, ljósmynd: FB Louisa Löfgren

Anne Frank og Vökull efst að lokinni forkeppni

Í dag er fyrsti keppnisdagurinn á Norðurlandamótinu í Herning þegar keppt er í fimmgangi, B-flokki gæðinga, unglingaflokki í gæðingakeppni og gæðingaskeiði. Dagskrá mótsins má nálgast með því að smella hér

Það var reynsluboltinn Viðar Ingólfsson sem reið á vaðið fyrir íslenska landsliðið en hann var eini keppandinn fyrir hönd Íslands í fimmgangi í meistaraflokki. Hesturinn sem Viðar keppti á er sænsk fæddur geldingur, Týr från Svala Gård, undan Símoni frá Efri-Rauðalæk og Hildi från Gibraltar.

Hlaut hann í einkunn 6,50 og sæti í A-úrslitum sem fram fara á sunnudaginn.

Efst að lokinni forkeppni er Anna Frank Andresen á Vökli frá Leirubakka en þau hlutu í einkunn 6,93, í öðru sæti er Nils-Christian Larsen á Gusti vom Kronshof með 6,83 í einkunn og í þriðja sætinu er Berglind Guðmundsdóttir á Sæ frá Ysta-Gerði

Næst á dagskrá er fimmgangur í ungmennaflokki þar sem Ísland á þrjá keppendur þau Hulda María Sveinbjörnsdóttir, Védís Huld Sigurðardóttir og Matthías Sigurðsson.

Niðurstöður úr forkeppni í fimmgangi meistara

# Knapi Hestur Einkunn
1 Anne Frank Andresen Vökull frá Leirubakka 6.93
2 Nils-Christian Larsen Gustur vom Kronshof 6.83
3 Berglind Gudmundsdottir Sær frá Ysta-Gerði 6.67
4 Viðar Ingólfsson Týr från Svala Gård 6.50
5 Steffi Svendsen Saga fra Teland 6.43
6 Gudmundur Einarsson Draumur från Tängmark 6.40
7 Laura Nyström Gilda fra Stenkullagård 6.33
8 Lene Thorud Laxnes frá Lambanesi 6.03
9 Susanne Larsen Murphy Völsungur frá Skeiðvöllum 5.97
10 Bjarne Fossan Valíant fra Fossan 5.93
11 Desirée Alameri Nikulás fra Guldbæk 5.87
12 Mona Fjeld Hnjúkur frá Minni-Reykjum 5.50
13 Frederikke Bøgeblad larsen Kraftur fra Yggdrasil 4.50

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link