Viðar á Kaldbak í Hestablaðinu
Í Hestablaðinu, sem kemur út á fimmtudaginn, 22. mars, er viðtal við Viðar Steinarsson á Kaldbak. Sem meðal annars er ræktandi Mídasar frá Kaldbak. Viðar er skeleggur í skoðunum og óhræddur við að setja þær fram. Í viðtalinu segir hann meðal annars að Mídas frá Kaldbak sé hlýr hestur en alls ekki kaldur eins og margir virðast halda. Steingrímur Sigurðsson og Guðmundur Björgvinsson gefa Mídasi sömu umsögn, en einnig er rætt við þá um hrossin á Kaldbak. Um kynbótadóma segir Viðar meðal annars:
„Við sjáum hins vegar mörg dæmi um hross sem eru að fara á sömu gangtegundinni á tölti og skeiði; sem sagt á bundnu tölti og fjórtakta skeiði. Oft hágeng og flott. Þetta er stirðleiki. Þessi hross fara oft á brotnu brokki líka. Dæmi eru um að slík hross fái ekki einkunn fyrir skeið en rosa háa fyrir tölt. Eða það sem er kannski enn verra, 8,0 – 8,5 fyrir allar gangtegundirnar og þar með feikna góða meðaleinkunn. Alltaf á sömu gangtegundinni.“
Lesið viðtal við Viðar á Kaldbak í Hestablaðinu. Hægt er að kaupa áskrift í síma 511-6622.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH