Viðar og Tumi ósigrandi í dag
A úrslit, meistaraflokkur var sannkölluð veisla. Keppnin var gríðarlega sterk en endaði þó með yfirburða sigri Viðars Ingólfssonar og Tuma frá Stóra-Hofi…
Tumi var talsvert betri heldur en hann var á Íslandsmóti 2010 í Hafnarfirði, mjúkur og góður á hæga töltinu, hraðabreytingarnar kraftmiklar en mýkri heldur en oft áður og greiða töltið takthreint, öruggt og ferðmikið. Önnur hross í þessum úrslitum voru öll góð, hver með sínu sniði. Magnaður endir á skemmtilegu móti.
Töltkeppni
A úrslit Meistaraflokkur –
1 Viðar Ingólfsson / Tumi frá Stóra-Hofi 9,06
2 Sigurbjörn Bárðarson / Jarl frá Mið-Fossum 8,67
3 Jakob Svavar Sigurðsson / Árborg frá Miðey 8,5
4 Hulda Gústafsdóttir / Sveigur frá Varmadal 8,22
5 Sigurður Sigurðarson / Kjarnorka frá Kálfholti 8,22
6 Erla Guðný Gylfadóttir / Erpir frá Mið-Fossum 8
7 Bylgja Gauksdóttir / Grýta frá Garðabæ 7,94
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH