Vignir í Litlu-Brekku sigursæll á gæðingamóti Léttis

  • 15. júlí 2020
  • Fréttir

Vignir og Evíta á flugaskeiði á Íþróttamóti sem haldið var í júní

Gæðingakeppni Léttis fór fram síðastliðið fimmtudagskvöld þann 9.júlí. Hestamannafélagið Léttir hefur haldið nokkur kvöldmót nú í sumar og hefur þátttaka í þeim verið með ágætum og góð tilþrif sést í hinum ýmsu keppnisgreinum. Þátttaka í gæðingakeppnin var nokkuð góð og teygði mótið sig inn í sumarnóttina eins og kemur fram á Facebook síðu Léttis.

Í A-flokki og B-flokki var keppt í tveimur styrkleikaflokkum auk þess að keppt var í barnaflokki og unglingaflokki.

Vignir Sigurðsson í Litlu-Brekku var sigursæll á hryssum úr eigin ræktun en hann stóð efstur í B-flokki á Stjörnuþoku frá Litlu-Brekku og í A-flokki á Evítu frá Litlu-Brekku. Í A-flokki áhugamanna var það Mist frá Eystra-Fróðholti sem stóð efst en knapi á henni var Auðbjörn Kristinsson. Í B-flokki áhugamanna var það Kuldi frá Fellshlíð sem efstur stóð setin af Elínu M. Stefánsdóttur.

Embla Lind Ragnarsdóttir sigraði keppni í barnaflokki á Mánadís frá Litla-Dal og í unglingaflokki var það Aldís Arna Óttarsdóttir sem fór með sigur á Töfra frá Akureyri.

Í samtali blaðamanns Eiðfaxa við Vignir hafði hann þetta um mótið að segja.

Mótið gekk vel fyrir sig en það hafði verið frekar erfitt að finna gæðingamótinu tíma þar sem allt riðlaðist í mótaskránni við Covid. Það hafa verið haldinn kvöldmót hér á Akureyri í vor og sumar og hafa þau tekist mjög vel. Það var einnig ánægjulegt að það skuli hafa verið hægt að halda gæðingamót í ár en í fyrra þurfti að fella niður gæðingamót Léttis sökum dræmrar þátttöku.“

Öll úrslit mótsins má nálgast hér fyrir neðan.

 

A flokkur gæðinga 1 flokkur.

1.Evíta frá Litlu Brekku/ Vignir Sigurðsson eink 8.70.

2.Vængur frá Grund/ Anna Kristín Friðriksdóttir eink 8,67.

3. Ullur frá Torfunesi/ Gestur Páll Júlíusson eink, 8.57.

4. Salka frá Litlu Brekku/Vignir Sigurðsson, knapi í úrslitum Þorvar Þorsteinsson eink. 8.48.

5. Kjarnorka frá Hryggstekk/ Egill Már Þórsson eink. 8.37.

6. Sproti frá Staðartungu/Jón Pétur Ólafsson eink. 8.20.

7. Grafík frá Hrafnstöðum/Vignir Sigurðsson, knapi í úrslitum S Arnar Sigfússon eink 7.68.

8 . Korpa frá Litlu Brekku/ Kristinn Ingi Valsson eink. 7.52.

Þess ber að geta að hryssan Evíta frá Litlu Brekku knapi Vignir Sigurðsson hlaut Hryssubikar Léttis árið 2020 en bikarinn er veittur efstu hryssu úr forkeppni í Gæðingakeppni Léttis ár hvert.

 

A flokkur gæðinga 2 flokkur.

1. Mist frá Eystra Fróðholti/ Auðbjörn Kristinsson eink 8.31.

2. Tvistur frá Garðshorni/ Hreinn Haukur Pálsson eink 8.18.

3. Sóldögg frá Fellshlíð/ Ævar Hreinsson eink 8.14.

4. Dáð frá Hólakoti/Ingunn Birna Árnadóttir eink 8.04.

5. Dís frá Kambi/ Þórdís Þórisdóttir eink 7.84.

6. Óskadís frá Auðbrekku/ Anna Ágústa Bernharðsdóttir eink 7.15.

 

B flokkur gæðinga 1 flokkur.

1. Stjörnuþoka frá Litlu Brekku/ Vignir Sigurðsson eink 8.51.

2. Kuldi frá Sandá/ Eva María Aradóttir eink 8.34.

3. Lakkrís frá Eyvindarmúla/Camila Hoj eink 8.20.

4. Hrafna frá Hafnafirði/Björgvin Helgason eink 7.83.

 

B flokkur gæðinga 2 flokkur.

1. Kuldi frá Fellshlíð/Elín M Stefánsdóttir eink 8.43.

2. Mánadögg frá Rifkelsstöðum/Hulda Siggerður Þórsisdóttir eink 8.31.

3. Myrkvi frá Höskuldsstöðum /Ævar Hreinsson eink 8.24.

4. Týr frá Fellshlíð/Ingunn Birna Árnadóttir eink 8.22.

5. Blesi frá Skjólgarði/ Steingrímur Magnússon eink. 8.20.

6. Lúna frá Miðkoti/Þórdís Þórsidóttir eink 8.14.

7. Gutti frá Lækjarbakka/ Margrét Ásta Hreinsdóttir eink 7.91.

 

Unglingaflokkur.

1. Aldís Arna Óttarsdóttir/ Töfri frá Akureyri eink 8.39.

2. Auður Karen Auðbjörnsdóttir/Eldaar frá Efra Holti eink 8.14.

3. Laufey Lilja Hermannsdóttir/Snædís frá Höskuldsstöðum eink 8.08.

4. Margrét Ásta Hreinsdóttir/Demantur frá Hraukbæ eink 00.

 

Barnaflokkur.

1. Emla Lind Ragnarsdóttir/Mánadís frá Litla-Dal eink 8.43.

2. Arnór Darri Kristinsson/Brimar frá Hofi eink 8.41.

3. Jósef Orri Axelsson/Aspar frá Y-Bægisá eink 8.34.

4. Heiða María Arnarsdóttir/Hulda frá Leirubakka eink 8.26.

4. Sandra Björk Hreinsdóttir/Fræur frá Hólakoti eink 8.23.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link