Vígsluhátíð reiðhallar Sprettara í dag
Við minnum á vígsluhátíð reiðhallar Hestamannafélagsins Spretts að Kjóavöllum laugardaginn 1. febrúar. Hátíðin hefst stundvíslega klukkan 16:00 með glæsilegri dagskrá í reiðsal. Að henni lokinni verður boðið upp á léttar veitingar. Að gefnu tilefni vill Stjórn Spretts koma því á framfæri að félagsmönnum er velkomið að taka með sér gesti á hátíðina.
Framkvæmdatími reiðhallarinnar
Bygging reiðhallarinnar var boðin út í alverktöku í september 2012.
Tilboð voru opnuð 5. október það ár og var skrifað undir samning við Jáverk hf um byggingu hallarinnar þann 15.11. 2012.
Verktaki vann að hönnun verksins fyrrihluta ársins 2013 og var hafist handa við framkvæmdir á staðnum í apríl.
Nú 1. febrúar 2013 er verkinu að mestu leyti lokið 9 mánuðum síðar.
Helstu kennistærðir byggingar
-
Reiðskemma ,reiðvöllur og áhorfendasvæði.
-
Suður bygging, forrými, félagsaðstaða o.fl
-
Austur bygging 1. hæð, þjónusturými
-
Austur bygging 2. hæð, Mótstjórn og tæknirými
Samtals 4000 m2
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH