Vilborg Smáradóttir og Lið Heimahaga hlutskörpust
Fyrsta keppniskvöldið í 1. deildinni í hestaíþróttum fór fram í gærkvöldi. Keppt var í fjórgangi og var keppnin spennandi allt til loka. Heildarniðurstöður kvöldsins má nálgast með því að smella hér.
Það fór svo að lokum að Vilborg Smáradóttir stóð uppi sem sigurvegari á Sigri frá Stóra-Vatnsskarði með einkunnina 7,20 í úrslitum en hún stóð einnig efst að lokinni forkeppni með 7,03 í einkunn.
Lið Heimahaga var stigahæsta liðið en keppendur þess í kvöld voru þau Guðmunda Ellen Sigurðardóttir, Hákon Dan Ólafsson og Gunnhildur Sveinbjarnardóttir en þau riðu öll til A-úrslita og stóðu sig feikna vel.
Eiðfaxi var að sjálfsögðu á staðnum og tók Vilborgu og liðsmenn Heimahaga í spjall að keppni lokinni.
Viðtölin má sjá í spilaranum hér að neðan.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH