Hestamannafélagið Sprettur Viljayfirlýsing um byggingu félagshesthúss hjá Spretti undirrituð

  • 3. maí 2026
  • Fréttir

Frá undirskrift í Samskipahöllinni reiðhöll Hestamannafélagsins Spretts. Ljósmynd: Facebooksíða Kópavogsbæjar

Á dögunum var stigið mikilvægt skref í uppbyggingu á félagssvæði hestamannafélagsins Spretts þegar Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar og Halldór Victorsson, formaður Spretts, undirrituðu viljayfirlýsingu um byggingu nýs félagshesthúss og skólastofu.

Verkefnið miðar að því að opna hestamennskuna fyrir breiðari hópi fólks og efla fræðslustarf innan félagsins, segir í tilkynningu á vef Hestamannafélagsins Spretts. Félagshesthúsið mun rúma um 40 hesta og er sérstaklega hannað með þarfir fatlaðra einstaklinga í huga, en þar verður m.a. boðið upp á reiðkennslu og sjúkraþjálfun með aðstoð hesta.

Reiðmennska sem valgrein í grunnskólum

Einn áhugaverðasti vinkill verkefnisins snýr að grunnskólabörnum í Kópavogi og Garðabæ. Uppi eru hugmyndir um að nemendum verði gert kleift að stunda reiðkennslu sem hluta af vali í grunnskóla á skólatíma. Með þessu móti vonast forsvarsmenn félagsins og sveitarfélaganna til að styðja við nýliðun í íþróttinni og auka aðgengi barna að öruggri og faglegri aðstöðu.

Lýðheilsa og samfélagslegur stuðningur

Í viljayfirlýsingunni kemur fram að framtíðarsýn Spretts sé að gera samveru við hestinn aðgengilegri með áherslu á heilsueflingu, félagslegan stuðning og menntun. Þetta samstarfsverkefni styður beint við markmið Kópavogs og Garðabæjar um bætta lýðheilsu, vellíðan og sjálfbærni í samfélaginu.

Sveitarfélögin lýsa yfir vilja til að styrkja verkefnið fjárhagslega og verður settur á laggirnar starfshópur sem mun halda utan um framkvæmdina. Gerður verður sérstakur samningur um næstu skref þegar hönnun og kostnaðaráætlun liggur fyrir.

Ljóst er að þessi uppbygging mun marka tímamót í starfsemi Spretts.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link