Vill leggja áherslu á nýliðun og kynningarmál
,,Ég tel mig geta komið að gagni við það verkefni sem framundan er,“ segir Lárus Ástmar Hannesson sem býður sig fram til formanns Landssambands hestamannafélaga.
Lárus Ástmar stundar hestamennsku með fjölskyldu sinni hjá hestamannafélaginu Snæfelling. Hann hefur komið víða við í hestamennsku, hann er hrossaræktandi, útskrifaður frá Hólaskóla og hefur unnið við tamningar hér á landi og í Þýskalandi. Hann var lengi formaður Gæðingadómarafélagsins og var formaður Snæfellings í 4 ár.
Lárus segist hafa tekið ákvörðun um framboð sitt, í samvinnu við fjölskyldu sína, eftir mikla hvatningu. Hann segir stjórn LH þurfi að leggja áherslu á samvinnu, kynningarstarf og nýliðun í hestamennsku. ,,Við þurfum að hugsa um fleira en Landsmót, en um leið að leysa landsmótsmálin í sem mestri sátt. Það er sjálfsagt enginn sem fær allar sínar væntingar uppfylltar í þeirri stöðu sem kominn er upp.“
Lárus er þriðji frambjóðandi til formanns LH. Áður höfðu Kristinn Hugason og Stefán Ármannsson tilkynnt framboð sín. Kosningar fara fram á framhaldsþingi á morgun.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Landsliðsteymi Danmerkur fyrir árið 2027 klárt