Vill verðlauna fólkið á bakvið tjöldin!

  • 18. nóvember 2021
  • Fréttir

Mette Moe Mannseth birti áhugaverð færslu á Facebook síðu sinni í morgun þar sem hún deilir myndbandi frá FEI dressage, þar sem verið er að verðlauna hestasvein (e. groom) ársins.

Mette setur þar fram spurninguna hvort ekki eigi að taka upp þennan sið á Íslandi og jafnvel veita fleiri verðlaun. „Hvernig væri að fara verðlauna fólkið bakvið tjöldin? Hestaveinar, þjálfarar og ekki síst MÓTAHALDARAR! t.d. Mótahaldari ársins, teymi ársins, hestasveinn ársins, eldhugar ársins/sjálfboðaliði ársins,“ segir Mette í færslunni og bætir við að knapar ársins gætu séð um hátíðina og veitt verðlaunin.

Eiðfaxa finnst þetta ekki svo galin hugmynd enda myndi lítið gerast nema fyrir tilstilli fólksins á bakvið tjöldin, Hvað finnst ykkur?

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link