Vísindaferð í Borgarfjörð og Snæfellsnes
Vísindaferð Hrossaræktarfélags Andvara verður farin 12. mars.
Í fréttatilkynningu frá hrossaræktarfélagsins kemur fram að vísindaferðin sé áhugaverð ferð til að kynnast hrossarækt og aðstöðu til þjálfunar hrossa í Borgarfirði og Snæfellsnesi. Allir eru velkomnir en félagsmenn hafa forgang.
Brottför verður frá félagsheimili Andvara með viðkomu á Hrímfaxa á Heimsenda kl. 9.
Dagskrá:
Mið-Fossar – Gunnar Reynisson/Helgi Gissurarson
Staðarhús – Agnar Þór Magnússon
Hótel Hamar – hádegisverður
Söðulholt – Einar Ólafsson
Hrísdalur – Gunnar Sturluson/ Siguroddur Pétursson.
Fargjald 3000 kr pr. mann. Hádegisverður 1800 kr.
Skráning í síðasta lagi fimmtudag 10. mars kl 20 hjá: [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH