Vökull til notkunar að Fjalli á Skeiðum
Vökull og Ævar Örn á Íslandsmóti 2021. Ljósmynd: Gísli Guðjónsson
Vökull frá Efri-Brú mun sinna hryssum í góðu hólfi að Fjalli á Skeiðum upp úr 20.júní.
Vökull er undan Sleipnisbikarhafanum Arði frá Brautarholti og Kolfinnsdótturinni Kjalvöru frá Efri-Brú. Fimm vetra gamall hlaut hann 8.37 í aðaleinkunn í kynbótadómi með 8.50 fyrir sköpulag þar sem hæst bar 9,0 fyrir samræmi, léttbyggður, fótahár og sívalvaxin. Fyrir hæfileika hlaut hann 8.28 þar af 9,5 fyrir fegurð í reið og 9,0 fyrir tölt, brokk, vilja og geðslag og hægt stökk. Vökull á einnig farsælan feril sem keppnishestur í B-flokki gæðinga, tölti og fjórgangi í íþróttakeppni
Hann hlaut árið 2025 1.verðlaun fyrir afkvæmi en þar segir m.a. “Vökull gefur stólpamyndarleg og skrefmikil hross sem sópar að í reið”
Folatollur undir Vökul kostar 185.000 með vsk innifalið í því er folatollurinn, girðingagjald og ein sónarskoðun
Fyrir nánar upplýsingar og pantanir má hafa samband við Ingvar Hjálmarsson (891-9597) eða Svölu Bjarnadóttur (869-6692) eða á netfang þeirra: svalaogingvar@gmail.com
Er þinn stóðhestur í stóðhestabók Eiðfaxa og þú vilt koma upplýsingum um hann á framfæri við lesendur Eiðfaxa. Sendu okkur texta á eidfaxi@eidfaxi.is auk ljósmyndar sem má nota með tilkynningunni.
Tinni slær heimsmet