Vörslusvipting hrossa vegna alvarlegs brots á dýravelferðarlögum
Mynd tengist fréttinni ekki beint.
Matvælastofnun hefur lagt tímabundið bann við búfjárhaldi á umráðamann búfjár á bæ í Hornafirði vegna alvarlegra brota á dýravelferðarlögum. Þetta kemur fram í tilkynningu sem MAST birti í dag.
MAST sendi umræddum aðila tilkynningum um vörslusviptingu hrossa á bænum þriðjudaginn 22. nóvember. Ekki öll hrossin voru í eigu viðkomandi umráðamanns og var eigendum þeirra gefinn kostur á að taka sín hross í eigin umsjá. Flest hrossin voru þó í eigu viðkomandi umráðamanns.
Í samráði við settan bústjóra og undir eftirliti MAST voru hrossin flokkuð þann 28. nóvember og ákveðið var í samráði við eigandann að senda 55 hross til slátrunar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH