Vorsýning á Hólum

  • 27. júní 2019
  • Fréttir
Mörg af hæst dæmdu hrossum vorsins voru sýnd og dæmd heima á Hólum

 

Eiðfaxi hefur undanfarnar vikur fjallað um kynbótasýningar íslenskra hrossa bæði hér heima og erlendis. Kynbótasýning var haldin á Hólum í Hjaltadal 3.-7.júní en þar komu til dóms 96 hross og þar af 83 í fullnaðardóm.

Þegar rýnt er í hestakostinn sem fram kom á þessari sýningu sést að hann var mjög frambærilegur og greinilegt að þjálfarar og sýnendur komu vel undirbúnir til leiks.

Nú er öllum vorsýningum  lokið og ljóst er hvaða hross standa efst í hverjum aldursflokki að svo stöddu. Af þeim hrossum sem efst standa, vekur eftirtekt, að  fjögur þeirra voru sýnd á Hólum. En það eru efsti 4.vetra stóðhesturinn, Leynir frá Garðshorni á Þelamörk, sem Eiðfaxi fjallaði um hér fyrr í þessum mánuði. Hæst dæmda 4.vetra hryssan Álfamær frá Prestsbæ, hæst dæmda 5 vetra hryssan, Þrá frá Prestsbæ og hæst dæmdi 6.vetra stóðhesturinn, Þór frá Torfunesi.

Hryssurnar Álfamær og Þrá, sem báðar eru frá Prestsbæ, eru til marks um það góða ræktunarstarf sem Inga og Ingar Jensen vinna í samstarfi við Þórarinn Eymundsson. Á hverju ári koma frá þessu, fremur smáa ræktunarbúi, eftirtektarverðir gripir. Báðar þessar hryssur eru undan Þóru frá Prestsbæ sem hestamenn muna svo glöggt eftir, afrekshryssa á öllum gangi og ein af stjörnum LM 2011 á Vindheimamelum, þar sem hún hlaut 9,08 fyrir hæfileika og þar á meðal 10 fyrir skeið. Faðir Álfameyjar er Spuni frá Vesturkoti en Þrá er undan Arion frá Eystra-Fróðholti.

Álfamær hlaut 8,33 fyrir sköpulag, 8,41 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,38. Bar þar hæst einkunnin 9,0 fyrir skeið og vilja og geðslag. Þrá, sem er nefnd í höfuðið á Þrá frá Hólum formóður sinni, hlaut fyrir sköpulag 8,31, fyrir hæfileika 8,76 og í aðaleinkunn 8,58. Hlaut hún m.a. sex níur fyrir einstaka eiginleika en þeir eru samræmi, tölt, hægt tölt, stökk, vilja og geðslag og fegurð í reið. Það var Þórarinn Eymundsson sem sýndi báðar þessar hryssur.

Þór frá Torfunesi, sem sýndur var á Hólum, er hæst dæmdi 6.vetra stóðhesturinn það sem af er ári. Hann var hæst dæmdi 5.vetra stóðhestur ársins 2018.

Þór er ræktaður af Baldvini K. Balvinssyni í Torfunesi en eigandi er Torfunes ehf. Þór var sýndur af Gísla Gíslasyni, nú sem áður, og hækkaði talsvert frá síðasta ári. Fyrir sköpulag hlaut hann 8,76, 9,5 fyrir samræmi og 9,0 fyrir háls,herðar og bóga og bak og lend. Fyrir hæfileika hlaut hann 8,83 m.a. 9,0 fyrir tölt, brokk, skeið, vilji og geðslag og fegurð í reið. Aðaleinkunnin 8,80.

Þór er undan Kolskegg frá Kjarnholtum og heiðursverðlauna hryssunni Bylgju frá Torfunesi en sú er undan Baldri frá Bakka og Kviku frá Rangá.

 

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link