WR Gæðingamót Geysis 12-14.júní 2020

  • 9. júní 2020
  • Fréttir

Skráning er í fullum gangi á Gæðingamót Geysis sem haldið verður á Rangárbökkum við Hellu dagana 12-14.júní.

Mótið er opið öllum og er fyrsta gæðingamótið sem telur inní heimslista (World ranking) í gæðingakeppni.

Keppt verður í A- og B- flokki gæðinga bæði opinn flokkur og áhugamannaflokkur, A- og B- flokkur ungmenna, unglingaflokkur, barnaflokkur og pollaflokkur.

Skráningu lýkur þriðjudaginn 9.júní kl 23:59. Öll skráning fer fram á sportfengur.com og Geysir er aðildarfélga sem heldur viðburðinn.

Þeir sem ætla að skrá sig í áhugamannaflokk velja A- eða B- flokkur gæðingflokkur 2.

Komi upp vandamál við skráingu er hægt að hafa samband í síma 8637130 áður en skráningu lýkur.

Öll afskráning fer í gegnum síma 8637130.

Náist ekki þátttaka hefur mótanefnd heimild til að sameina eða fella niður flokka.

Mótinu mun svo vera streymt á Alendis.is

Mótanefndin

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link