WR íþróttamót Geysis – skráning í dag

  • 17. maí 2021
  • Fréttir

Skráningu lýkur í kvöld 17.maí

WR Íþróttamót Geysis 21-24 maí 2021
Hestamannafélagið Geysir ætlar að halda WR íþróttamót um Hvítasunnuhelgina 21-24 maí 2021. Fjöldi greina er í boði og kemur allt fram á sportfeng.com þar sem skráning fer fram. Hvetjum alla til að skrá sem fyrst því ef skráning fer fram úr björtustu vonum þá gæti þurft að byrja fyrr.
Skráning og greiðsla fer fram á sportfeng.com með Geysir sem aðildarfélag þegar skráð er.
Skráningu lýkur mánudaginn 17.maí kl 23:59 en endilega skráið sem allra fyrst til að við sjáum hvort við þurfum að byrja fyrr en föstudaginn 21.maí.
Mótanefndin áskilur sér rétt til að fella niður eða sameina keppnisgreinar ef ekki nægur fjöldi þátttaenda næst í viðkomandi keppnisgrein.
Ef vandamál koma upp í skráningu áður en skráningarfresti lýkur þá er hægt að hafa samband í síma 8637130.
Mótanefndin

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar