Yfirlit yfir hæstu einkunnir ársins í A-flokki gæðinga-

  • 19. september 2011
  • Fréttir
Yfirlit yfir hæstu einkunnir ársins í A-flokki gæðinga-

Löngu og viðburðarríku keppnistímabili er nú lokið og því ekki úr vegi að fara yfir árangur ársins. Fjöldi og úrval móta hefur sjaldan eða aldrei verið meiri en í ár. Stórstjörnur hafa komið fram og aðrir stólpagæðingar sannað sig enn og aftur.

Það kemur varla neinum á óvart að margar af hæstu einkunnum ársins í gæðingakeppni hlutust á Landsmóti en margir gæðinganna í efstu sætum A-flokks gæðinga hlutu þó hærri einkunnir í Landsmótsúrtökum.

Meðfylgjandi er listi yfir þau hross sem hlutu hæstu einkunnir fyrir sýningar allra gangtegunda í A-flokki gæðinga á árinu. Hér eru á ferðinni 10 glæstir gæðingar og fylgja með myndir af þeim frá Landsmótinu í sumar. Nokkrir þeirra rötuðu á listann oftar en einu sinni vegna yfirburðarárangurs á fleiri en einu móti en á listanum er tekið mið hæstu einkunn sem hrossið hlaut.

1.-2. Ómur frá Kvistum, kn. Hinrik Bragason – Landsmót hestamanna – milliriðill: 8,76
1.-2. Ágústínus frá Melaleiti, kn. Daníel Jónsson Landsmótsúrtaka Geysis, Trausta, Smára og Loga: 8,76
3. Stakkur frá Halldórsstöðum, kn. Sigurbjörn Bárðarson  Landsmót hestamanna – milliriðill – 8,72
4. Heljar frá Hemlu II, kn. Vignir Siggeirsson Landsmótsúrtaka Geysis, Trausta, Smára og Loga: 8,67
5. Álmur frá Skjálg, kn. Sigursteinn Sumarliðason Landsmót hestamanna – milliriðill: 8,63
6.-7. Sturla frá Hafsteinsstöðum, kn. Hinrik Bragason Gæðingamót Fáks (WR): 8,60
6.-7. Arnar frá Blesastöðum 2A, kn. Sigursteinn Sumarliðason Landsmótsúrtaka Geysis, Trausta, Smára og Loga: 8,60
8. Tenór frá Túnsbergi, kn. Erlingur Erlingsson Landsmótsúrtaka Geysis, Trausta, Smára og Loga: 8,59
9.-10. Fursti frá Stóra-Hofi, kn. Daníel Jónsson – Landsmótsúrtaka Geysis, Trausta, Smára og Loga: 8,56
9.-10. Tristan frá Árgerði, kn. Stefán Birgir Stefánsson – Stórmót hestamanna: 8,56

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link