Yfirlýsing frá Magnúsi Lárussyni kynbótadómara
Á kynbótasýningu á Selfossi nú í vikunni urðu mér á alvarleg mistök. Lét ég orð falla sem eru algerlega óásættanleg fyrir mann í minni stöðu. Ég biðst innilegrar afsökunar á framferði mínu. Ég hef ávallt í mínum störfum gætt hlutleysis við dómstörf og metið hvert hross eins og það hefur komið fyrir í dómi hverju sinni. Friður verður að ríkja um dómstörf kynbótahrossa og traust á því starfi sem þar fer fram. Mín afglöp eru þess eðlis að því trausti er nú ógnað. Mín persónulegu mistök mega ekki verða til þess að að kasta rýrð á það starf. Ég mun því víkja til hliðar í dómstörfum kynbótahrossa að svo komnu máli og ítreka jafnframt afsökunarbeiðni mína til allra þeirra sem hlut eiga að máli.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH