Landsmót 2024 Áramótakveðja frá Landsmóti 2024

  • 31. desember 2023
  • Aðsend grein

Kæru hestamenn!

Á sumardögum komandi árs, 2024, munu hestamannafélögin Sprettur og Fákur standa fyrir Landsmóti hestamanna 1.-7.júlí á félagssvæði Fáks í Víðidal.
Landsmót hestamanna er stærsti íþróttaviðburðurinn sem haldinn er hérlendis og mótið næsta sumar verður engin undantekning.

Landsmót okkar hestamanna eru gullegg, þessi einstaki viðburður sem haldin er annað hvert ár, eru okkar stærsta tækifæri til kynningar og sýninga á hestaíþróttinni þar sem saman koma bestu hestar og knapar landsins. Landsmótin eru uppskeruhátíð eigenda, ræktenda og knapa þar sem ungar og upprennandi stjörnur í bland við eldri og reyndari koma fram og sýna listir sínar. Landsmót er líka mannamót, þar sem kemur saman fjöldinn allur af fólki; hestamenn og aðrir unnendur íslenska hestsins á öllum aldri þar sem margar kynslóðir njóta
og skemmta sér saman. Það geta allir fundið sína tengingu við íslenska hestinn, hann er svo ótrúlega mögnuð skepna og er líka svo stór hluti af sögu og menningu okkar Íslendinga.
Það er því mikilvægt að Landsmótin takist vel, sama hvar þau eru haldin. Landsmót á Hellu tókst vel og það gefur Landsmóti í Reykjavík meðbyr. Undirbúningur Landsmóts 2024 er hafinn og gengur vel en nú eru um 6 mánuðir til stefnu. Við munum bjóða upp á glæsilegt mótssvæði, vellir og aðstaða eru til fyrirmyndar en á haustdögum voru keppnisvellir, kynbóta- og skeiðbraut betrumbætt. Félagssvæði Fáks hefur
sannað sig sem afar gott mótssvæði við stórmótahald, rúmgott og reynslumikið, þar sem fyrirkomulag og flæði inn á keppnisvelli er þekkt.
Forsölu miða fer senn að ljúka en miðasala fer fram á tix.ix. Miðaverð vikupassa fyrir fullorðinn kostar nú 21.900kr en hækkar í 24.900kr á nýju ári.

Lansdmót hestamanna er viðburður sem enginn unnandi íslenska hestsins má láta framhjá sér fara. Fjölskylduhátíð og sannkölluð veisla fyrir unnendur íslenska hestsins. Boðið verður upp á keppni og sýningar á tveimur völlum, ræktun íslenska hestsins verða gerð góð skil og
einnig verður stórt markaðssvæði fyrir þá sem vilja gera góð kaup og kynna sínar vörur. Börnin fá leiksvæði á besta stað, fræðsla og fyrirlestrar verða í boði og síðast en ekki síst verður mikil gleði frá morgni til kvölds þar sem landslið skemmtikrafta mun koma fram.

Hlökkum til að sjá ykkur á Landsmóti hestamanna í Reykjavík 2024!

Gleðilegt ár!
Starfsfólk Landsmót 2024

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link