1278 kílómetrar í Húnaþingi
Til viðbótar við reiðleiðir í kortasjá LH, sem voru 5586 km af reiðleiðum á Suður- og Vesturlandi, eru komnir 1278 kílómetrar af reiðleiðum í Húnavatnssýslum. Um er að ræða flestar stofn- og héraðsleiðir í sýslunum. Alls eru því nú skráðir 6864 kílómetrar af reiðleiðum í kortasjána. Næst verður farið í skráningu á reiðleiðum í Skagafjarðar- og Eyjafjarðarsýslum og er ráðgert að þær verði komnar inn fyrir áramót. Allar ábendingar um hvað eina sem betur má fara við skráninguna eru vel þegnar og sendist á Halldór H. Halldórsson á netfangið: [email protected] eða á Sæmund Eiríksson: [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH