2. Landsbankamót vetrarins
2. Landsbankamót vetrarins verður haldið 20. mars, kl.13:00 að Sörlastöðum í Hafnarfirði. Keppt er í tölti á beinni braut. Allir keppendur í sama flokki eru saman á vellinum. Þeir ríða hver á eftir öðrum til dóms. Sýna skal hægt tölt aðra leið og frjálsa ferð hina, eftir fyrirmælum þular. Auk þessa er keppt í 100 m. skeiði. Mótin eru opin öllum hestamönnum.
Flokkar í boði:
- 1. flokkur
- 2. flokkur karlar
- 2. flokkur konur
- 3. flokkur (lítið vanir)
- Heldrimannaflokkur 50+
- Ungmenni
- Unglingar
- Börn
- Pollar – skipt í hópa þeirra sem ríða sjálfir og þeirra sem teymt er undir.
- 100 m. skeið
Skráning:
Skráningargjald er kr. 1500 fyrir alla flokka nema polla 1000.
Skráning er frá kl. 11:00 – 12:00 á mótsdaginn. Posi á staðnum.
Keppendur athugið:
Greiða skal skráningargjald við skráningu. Það eru keppnisnúmer í mörgum hesthúsum, vinsamlegast skilið þeim.
Allir að láta sjá sig !
Mótanefnd Sörla
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH