2.vetrarmót Grana – Opið töltmót
Nú er komið að 2. vetrarmóti Hestamannafélagsins Grana á Hvanneyri. Haldið verður opið töltmót þann 25. febrúar næstkomandi að Mið-fossum í Borgarfirði. Mótið hefst kl. 18.00.
Keppt verður í 1. flokki, 2. flokki og Bjórtölti (eða Kóktölti fyrir börn).
Skráning á mótið þarf að berast fyrir klukkan 21.00 á miðvikudagskvöldið 24.
febrúar. Tekið verður við þeim á [email protected]
Koma þarf fram:
Nafn knapa.
Nafn hests.
Aldur.
Litur.
Hönd sem riðið er uppá.
Flokkur sem keppt er í.
Skráningargjöld borgast á staðnum í reiðufé.
Frítt er inn fyrir áhorfendur og sjoppa á staðnum 🙂
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH