24 framboð bárust til stjórnar LH
Alls bárust 24 framboð til stjórnar LH en framboðsfrestur rann út í hádeginu.
Um leið og Kjörnefnd LH birtir lokalista yfir frambjóðendur hvetur hún þingfulltrúa á að mæta tímanlega, til að flýta fyrir undirbúningi þingfundar. Þingfundur hefst kl. 9 á morgun, laugardaginn 8. nóvember. Þingið fer fram í E-sal á þriðju hæð í húsakynnum ÍSÍ og LH að Engjavegi 6, Reykjavík.
Kjörin verður ný stjórn og varastjórn til næstu tveggja ára.
Eftirtaldir gefa kost á sér til stjórnarstarfa:
Formaður:
Þrjú framboð bárust til formennsku samtakanna.
Kristinn Hugason, Spretti
Stefán G. Ármannsson, Dreyra
Lárus Ástmar Hannesson, Snæfellingi
Aðalstjórn :
Til aðalstjórnar bárust 13 framboð.
Hrönn Kjartansdóttir, Herði
Andrea Þorvaldsdóttir, Létti
Sigurður Ævarsson, Sörla
Þorvarður Helgason, Fáki
Jóna Dís Bragadóttir, Herði
Ólafur Þórisson, Geysi
Eyþór Gíslason, Glað
Stella Björg Kristinsdóttir, Spretti
Haukur Baldvinsson, Sleipni
Sigurður Ágústsson, Neista
Gunnar Dungal, Stíganda
Steingrímur Viktorsson, Ljúf
Jónas Vigfússon, Funa
Varastjórn:
Til varastjórnar bárust 8 framboð.
Erling Sigurðsson, Spretti
Petra Kristín Kristinsdóttir, Sindra
Rúnar Þór Guðbrandsson, Herði
Magnús Andrésson, Stíganda
Helga B. Helgadóttir, Fáki
Valgeir Jónsson, Sleipni
Rósa Emilsdóttir, Skugga
Sigurjón Rúnar Bragason, Fáki
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH