24 kynbótahross hafa náð LM lágmörkum

  • 19. maí 2011
  • Fréttir
Máttur frá Leirubakka leiðir hópinn

Eftir kynbótasýninguna í Reykjavík eru 24 hross sem hafa náð lágmarkseinunn inn á LM2011 á Vindheimamelum. Átján stóðhestar og sex hryssur. Með hæstu einkunn er stóðhesturinn Máttur frá Leirubakka, sem sló í gegn á sýningunni í Reykjavík undir hnakk hjá Sigurði V. Matthíassyni. Hann er með 8,48 í aðaleinkunn, þar af 8,80 fyrir kosti. Hann er með 9,0 fyrir tölt, skeið, vilja og fegurð. Máttur er undan Keili frá Miðsitju og Hrafnkötlu frá Leirubakka, Hervarsdóttur frá Sauðárkróki. Frábær fulltrúi Sveinsættar á Landsmóti í Skagafirði.

Með hæstu einkunn hryssna inn á Landsmót eins og staðan er núna er  Kolka frá Hákoti með 8,46. Hún er aðeins 5 vetra og fór með loftum í Víðidalnum. Knapi Hrefna María Ómarsdóttir. Kolka er undan Íkoni frá Hákoti, sem er undan Töfra frá Kjartansstöðum og Bellu frá Kirkjubæ, sem stóð efst í 4 vetra flokki á LM1998 á Melgerðismelum. Móðir Kolku er Frá frá Hákoti, Þorradóttir frá Þúfu. Kolka er með 9,5 fyrir bak og lend, 9,0 fyrir samræmi, brokk og vilja.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link