453 reiðleiðir á kortasjá
Aragrúi reiðleiða er nú að finna á Kortasjá Landssamband hestamannafélaga…
Landssamband hestamannafélaga (LH) og Loftmyndir ehf. undirrituðu í fyrravor samning um afnot af landfræðilegum gögnum í eigu Loftmynda og þjónustu þeim tengdri til að hnita reiðleiðir sem sjást á loftmyndunum.
Í dag er búið að skrá 453 reiðleiðir og kafla að heildarlengd 2510 km. á suðvestur- og vesturlandi.
„Viðbót í kortasjána nú eru 1070 km. á vesturlandi. Næst er áformað að hefja skráningu reiðleiða á suðurlandi. Ég vil endilega hvetja þá sem eru vel staðkunnugir og sjá eitthvað sem betur má fara að koma ábendingum áleiðis til LH eða undirritaðs [email protected],“ segir Halldór H. Halldórsson á heimasíðu Landsambandsins.
Eiðfaxi hvetur hestamenn að líta á Kortasjánna, og leggja hönd á plóg við að skrásetja reiðleiðir, öllum hestamönnum til gagns og gaman.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH