Opið íþróttamót Freyfaxa
Ásgeir Máni Ragnarsson sigraði í fjórgangi og tölti barna mynd: Stefanía Malen
Opið íþróttamót Hestamannafélagsins Freyfaxa fór fram um helgina á Iðavöllum. Eiðfaxi hafði samband við Brynju Rut Borgarsdóttir, sem situr í stjórn félagsins, og spurði hana út í tildrög og framkvæmd mótsins.
„Okkur í stjórn Freyfaxa datt í hug í vor að halda opið löglegt íþróttamót á Austurlandi í von um að fólk myndi taka vel í hugmyndina, skráning yrði góð og að þetta gæti orðið árlegur viðburður hér. Við höfðum ekki hitt neinn á svæðinu sem gat staðfest hvenær síðasta löglega íþróttamótið var haldið þannig að það var ekkert annað í stöðunni en að kýla á það og sjá hvernig það færi. Vissulega vorum við hikandi þegar covid fór aftur af stað af fullum krafti núna nýlega en tókum ákvörðun um að halda mótið þar sem við erum aldrei vön því að ná fólksfjölda nálægt 100 manns, gátum haldið 2 metra reglunni auðveldlega á okkar stóra félagssvæði og með frábærum jákvæðum dómurum sem bæði dæmdu og rituðu á sama tíma tókst okkur þetta.
Skráning hefði vissulega mátt vera betri en það má með sanni segja að allir þeir sem mættu voru jákvæðir og ánægðir með framlagið. Við keyrðum mótið á einum degi – fyrst forkeppni og svo úrslit allt í sömu röð.“
Á mótinu var keppt í þremur töltgreinum (T3,T7 og T8), tveimur fjórgangsgreinum (V2 og V5) og í fimmgangi F2.
Hans Kjerúlf og Teningur frá Víðivöllum fremri sigruðu keppni í fimmgangi með 6,21 í einkunn. Í tölti T3 1.flokki var það Eiríkur Bjarnason á Mána frá Eskifirði sem stóð efstur að loknum úrslitum með 6,17 í einkunn í sömu grein í 2.flokki var það Melanie Hallbach á Haföldu frá Gunnarsstöðum sem stóð efst með 5,47 í einkunn en þær stóðu einnig efsta í fjórgangi (V5) með 6,12 í einkunn.
Ingibjörg Þórarinsdóttir sigraði keppni í T7 2.flokki á Skálmöld frá Rútsstöðum með 6,00 í einkunn. Ásgeir Máni Ragnarsson sigraði keppni í Tölti T8 barna á Flygli frá Bakkagerði með 5,58 í einkunn en hann sigraði einnig í fjórgangi (V5) barna á Bassa frá Skriðufelli.
Í fjórgangi 1.flokki var það Anja Karina Susanna Siipola sem sigraði með 6,10 í einkunn á hestinum Styrmi frá Hveragerði. Arney Ólöf Arnardóttir var eini keppandinn í ungmennaflokki í þessari grein og fór heim með gullið.
| Tölt T3 | |||
| Opinn flokkur – 1. flokkur | |||
| Forkeppni | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Jens Einarsson | Dimmbrá frá Egilsstaðabæ | 6,03 |
| 2 | Eiríkur Bjarnason | Máni frá Eskifirði | 5,90 |
| 3 | Ragnar Magnússon | Reynir frá Skriðufelli | 5,63 |
| 4 | Sunna Júlía Þórðardóttir | Sæstjarna frá Skorrastað 4 | 4,33 |
| 5 | Einar Ben Þorsteinsson | Hvanndal frá Stormi | 0,60 |
| A úrslit | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Eiríkur Bjarnason | Máni frá Eskifirði | 6,17 |
| 2 | Jens Einarsson | Dimmbrá frá Egilsstaðabæ | 5,89 |
| 3 | Sunna Júlía Þórðardóttir | Sæstjarna frá Skorrastað 4 | 5,11 |
| 4 | Ragnar Magnússon | Reynir frá Skriðufelli | 3,44 |
| 5 | Einar Ben Þorsteinsson | Hvanndal frá Stormi | 0,00 |
| Opinn flokkur – 2. flokkur | |||
| Forkeppni | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Melanie Hallbach | Hafalda frá Gunnarsstöðum | 5,47 |
| 2 | Ármann Örn Magnússon | Tíbrá frá Egilsstaðabæ | 5,20 |
| 3 | Brynja Rut Borgarsdóttir | Hrappur frá Holtsenda 2 | 5,17 |
| 4 | Guðrún Agnarsdóttir | Máni frá Eystra-Fróðholti | 5,13 |
| 5 | Guðrún Agnarsdóttir | Hrímnir frá Hofteigi | 4,40 |
| A úrslit | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Melanie Hallbach | Hafalda frá Gunnarsstöðum | 5,39 |
| 2 | Ármann Örn Magnússon | Tíbrá frá Egilsstaðabæ | 5,28 |
| 3 | Guðrún Agnarsdóttir | Máni frá Eystra-Fróðholti | 4,94 |
| Tölt T7 | |||
| Opinn flokkur – 2. flokkur | |||
| Forkeppni | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Ingibjörg Þórarinsdóttir | Skálmöld frá Rútsstöðum | 5,30 |
| 2 | Diljá Ýr Tryggvadóttir | Króna frá Hrauni | 5,20 |
| 3 | Jóhanna Þorbjörg Magnúsdóttir | Náttfari frá Lindarholti | 4,77 |
| 4 | Ríkey Nótt Tryggvadóttir | Tvistur frá Árgerði | 4,00 |
| A úrslit | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Ingibjörg Þórarinsdóttir | Skálmöld frá Rútsstöðum | 6,00 |
| 2 | Diljá Ýr Tryggvadóttir | Króna frá Hrauni | 5,42 |
| 3 | Ríkey Nótt Tryggvadóttir | Tvistur frá Árgerði | 4,25 |
| 4 | Jóhanna Þorbjörg Magnúsdóttir | Náttfari frá Lindarholti | 0,00 |
| Tölt T8 | |||
| Barnaflokkur | |||
| Forkeppni | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Ásgeir Máni Ragnarsson | Flygill frá Bakkagerði | 4,80 |
| 2 | Edda Lind Einarsdóttir Hallbac | Kredía frá Útnyrðingsstöðum | 4,00 |
| A úrslit | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Ásgeir Máni Ragnarsson | Flygill frá Bakkagerði | 5,58 |
| 2 | Edda Lind Einarsdóttir Hallbac | Kredía frá Útnyrðingsstöðum | 3,83 |
| Fjórgangur V2 | |||
| Opinn flokkur – 1. flokkur | |||
| Forkeppni | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Ragnar Magnússon | Leiknir frá Bakkagerði | 5,83 |
| 2 | Anja-Kaarina Susanna Siipola | Styrmir frá Hveragerði | 5,80 |
| 3 | Anja-Kaarina Susanna Siipola | Styrmir frá Hveragerði | 5,57 |
| 4 | Guðrún Alexandra Tryggvadóttir | Gola frá Ormarsstöðum | 5,50 |
| 5 | Björn Ólafur Úlfsson | Tumi frá Hamarsey | 4,97 |
| 6 | Sunna Júlía Þórðardóttir | Kyndill frá Skorrastað 4 | 4,63 |
| A úrslit | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Anja-Kaarina Susanna Siipola | Styrmir frá Hveragerði | 6,10 |
| 2 | Björn Ólafur Úlfsson | Tumi frá Hamarsey | 5,83 |
| 3 | Guðrún Alexandra Tryggvadóttir | Gola frá Ormarsstöðum | 5,73 |
| 4 | Ragnar Magnússon | Leiknir frá Bakkagerði | 5,57 |
| 5 | Sunna Júlía Þórðardóttir | Kyndill frá Skorrastað 4 | 4,77 |
| Ungmennaflokkur | |||
| Forkeppni | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Arney Ólöf Arnardóttir | Hrafnar frá Naustum III | 3,93 |
| A úrslit | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Arney Ólöf Arnardóttir | Hrafnar frá Naustum III | 5,13 |
| Fjórgangur V5 | |||
| Opinn flokkur – 2. flokkur | |||
| Forkeppni | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Melanie Hallbach | Hafalda frá Gunnarsstöðum | 5,97 |
| 2 | Guðdís Benný Eiríksdóttir | Jötunn frá Dýrfinnustöðum | 5,70 |
| 3 | Ingibjörg Þórarinsdóttir | Skálmöld frá Rútsstöðum | 5,67 |
| 4 | Jóhanna Þorbjörg Magnúsdóttir | Náttfari frá Lindarholti | 5,57 |
| 5 | Brynja Rut Borgarsdóttir | Hrappur frá Holtsenda 2 | 5,43 |
| 6 | Magnús Fannar Benediktsson | Framtíð frá Guðnastöðum | 5,03 |
| 7 | Guðrún Agnarsdóttir | Máni frá Eystra-Fróðholti | 4,97 |
| 8-9 | Ríkey Nótt Tryggvadóttir | Tvistur frá Árgerði | 4,93 |
| 8-9 | Diljá Ýr Tryggvadóttir | Króna frá Hrauni | 4,93 |
| 10 | Ármann Örn Magnússon | Nora frá Egilsstaðabæ | 4,87 |
| 11 | Örvar Már Jónsson | Svanur frá Gljúfurárholti | 4,23 |
| 12 | Guðrún Agnarsdóttir | Hrímnir frá Hofteigi | 3,47 |
| A úrslit | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Melanie Hallbach | Hafalda frá Gunnarsstöðum | 6,12 |
| 2 | Ingibjörg Þórarinsdóttir | Skálmöld frá Rútsstöðum | 5,79 |
| 3 | Brynja Rut Borgarsdóttir | Hrappur frá Holtsenda 2 | 5,42 |
| 4 | Jóhanna Þorbjörg Magnúsdóttir | Náttfari frá Lindarholti | 4,96 |
| 5 | Guðdís Benný Eiríksdóttir | Jötunn frá Dýrfinnustöðum | 4,83 |
| Barnaflokkur | |||
| Forkeppni | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Ásgeir Máni Ragnarsson | Bassi frá Skriðufelli | 4,40 |
| A úrslit | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Ásgeir Máni Ragnarsson | Bassi frá Skriðufelli | 5,04 |
| Fimmgangur F2 | |||
| Opinn flokkur – 1. flokkur | |||
| Forkeppni | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Hans Kjerúlf | Teningur frá Víðivöllum fremri | 5,43 |
| 2 | Einar Ben Þorsteinsson | Matthildur frá Stormi | 1,37 |
| A úrslit | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Hans Kjerúlf | Teningur frá Víðivöllum fremri | 6,21 |
| 2 | Einar Ben Þorsteinsson | Matthildur frá Stormi | 0,00 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH