79 ára og á leið á Heimsmeistaramót
Cora Wijmans mun keppa fyrir hönd Hollands á Heimsmeistaramótinu í ágúst. Cora keppir í gæðingaskeiði á hryssu sinni Rembu frá Skógi en Remba er 16 vetra undan Depli frá Votamúla og Eldeyju frá Oddhóli.
Cora og Remba unnu gæðingaskeiðið á Hollenskameistaramótinu og tryggðu sér þannig sæti í Hollenska landsliðinu. Það sem er líka kannski merkilegt með Cora er að hún er fædd 1944 og er því 79 ára. Það verður gaman að fylgjast með Cora og Rembu á Heimsmeistaramótinu.
HÉR geturðu lesið meiri upplýsingar um hollenska liðið.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH