Icehorse Festival hefst á fimmtudaginn
Icehorse Festival er einn stærsti innanhús WR viðburðinn fyrir íslenska hestinn. Mótið byrjar á fimmtudaginn og stendur yfir alla helgina en þessi gríðarstóri innanhús viðburður hefur vakið mikla hrifningu síðustu ár. Tæplega 300 þátttakendur eru skráðir til leiks með enn fleiri áhorfendum.
Fyrir þá sem komast ekki til Danmerkur þá er hægt að horfa á mótið í gegnum streymi. Keppt er í íþróttakeppni (fyrsta og öðrum flokki), ásamt stóðhestasýningu og Futurity keppni. Mörg spennandi pör eru á listanum en þarna munu etja kappi saman margir af þeim bestu. Jóhann Rúnar Skúlason er skráður með þá Evert fra Slippen og Sílas vom Frostwald í töltið. Frauke Schenzel er skráð með Óðinn vom Habichtswald í fimmgang og slaktaumatölt og Jódísi vom Kronshof í tölt og fjórgang. Sys Pilegaard er skráð með Abel fra Tyrevoldsdal sem sló í gegn á WorldTölt fyrr á árinu. Nils Christina Larsen er skráður með fimm hesta til leiks þar á meðal Flaum frá Sólvangi. Svona mætti lengi telja en við mælum með að fólk skoði þátttakendalistann HÉR.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH