Kynbótasýningar Tvö hross hlutu 10 fyrir samstarfsvilja

  • 4. október 2022
  • Fréttir

Lydía frá Eystri-Hól hlaut 10 fyrir samstarfsvilja á vorsýningu í Hafnarfirði, sýnandi Árni Björn Pálsson Mynd: Nicki Pfau

Kynbótaárið 2022

Nú þegar kynbótasýningum árið 2022 er lokið þá er gaman að renna yfir níufimmur og tíur ársins í einstökum eiginleikum. Næsti eiginleiki sem við tökum fyrir hér á vef Eiðfaxa er samstarfsvilji.

Tvö hross hlutu 10 fyrir samstarfsvilja á árinu en það eru þau Sindri frá Hjarðartúni og Lýdía frá Eystri-Hól.

Sindri hlaut 10 fyrir samstarfsvilja á Landsmótinu en hann hlaut einnig 10 fyrir brokk og skeið. Það var Hans Þór Hilmarsson sem sýndi hann. Sindri er sjö vetra undan Stála frá Kjarri og Dögun frá Hjarðartúni. Ræktandi er Óskar Eyjólfsson en eigendur eru þau Bjarni Elvar Pétursson og Kristín Heimisdóttir.

Lýdía hlaut 10 fyrir samstarfsvilja á vorsýningu í Hafnarfirði en hún hlaut einnig 9,5 fyrir tölt, brokk, hægt tölt og fegurð í reið á þessari sömu sýningu. Það var Árni Björn Pálsson sem sýndi hryssuna en ræktandi hennar er Hestar ehf. og eigendur eru Anja Egger-Meier og Kronshof GbR.

28 hross hlutu 9,5 fyrir samstarfsvilja á árinu og öll voru þau sýnd hér á landi.

Listi yfir þau hross sem hlutu 9,5 fyrir samstarfsvilja.

Nafn Uppruni í þgf. Sýnandi
Gjöf Hofi á Höfðaströnd Þórarinn Eymundsson
Nótt Miklaholti Árni Björn Pálsson
Viðar Skör Helga Una Björnsdóttir
Rjúpa Þjórsárbakka Teitur Árnason
Telma Árbakka Hinrik Bragason
Hannibal Þúfum Mette Camilla Moe Mannseth
Skarpur Kýrholti Jakob Svavar Sigurðsson
Sindri Hjarðartúni Hans Þór Hilmarsson
Draumur Feti Ólafur Andri Guðmundsson
Eljar Gljúfurárholti Jakob Svavar Sigurðsson
Álfamær Prestsbæ Árni Björn Pálsson
Ísdís Árdal Ragnhildur Haraldsdóttir
Hreyfing Akureyri Þórarinn Eymundsson
Lýdía Eystri-Hól Árni Björn Pálsson
Kastanía Kvistum Árni Björn Pálsson
Dússý Vakurstöðum Teitur Árnason
Auðlind Þjórsárbakka Teitur Árnason
Aldís Árheimum Sigursteinn Sumarliðason
Dagmar Hjarðartúni Hans Þór Hilmarsson
Sólfaxi Herríðarhóli Árni Björn Pálsson
Sögn Skipaskaga Helga Una Björnsdóttir
Elding Hrímnisholti Benjamín Sandur Ingólfsson
Dís Ytra-Vallholti Bjarni Jónasson
Staka Hólum Mette Camilla Moe Mannseth
Vala Hjarðartúni Arnhildur Helgadóttir
Salka Efri-Brú Árni Björn Pálsson
Fróði Flugumýri Eyrún Ýr Pálsdóttir
Hringsjá Enni Teitur Árnason

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar