Hæstu einkunnir ársins í gæðingaskeiði
Elvar Þormarsson og Fjalladís frá Fornusöndum eru efst á stöðulistanum í gæðingaskeiði. Mynd: Óla myndir
Nú þegar keppnistímabilinu hér á landi er lokið er ráð að taka saman 10 hæstu einkunnir ársins í hverri keppnisgrein og aldursflokki og er þá miðað við einkunn í forkeppni. Það er hæsta einkunn hjá hverju pari sem gildir en notast er við stöðulista úr Sportfeng. Við byrjum á því að taka fyrir hæstu einkunnir ársins í gæðingaskeiði PP1.
Hæstu einkunn ársins í opnum flokki á Elvar Þormarsson á Fjalladís frá Fornusöndum en þau hlutu hvorki meira né minna en 8,88 í einkunn á Íslandsmótinu en þau eru ríkjandi Íslandsmeistarar og Landsmótssigurvegarar í greininni.
Benedikt Ólafsson og Leira-Björk frá Naustum eiga hæstu einkunn ársins í þessari grein í ungmennaflokki en þau hlutu 7,63 í einkunn, þetta er ekki í fyrsta skiptið sem þetta par er efst á þessum lista í yngri flokkunum en þau stóðu efst í unglingaflokki 2020 og 2021.
Í unglingaflokki eru það Jón Ársæll Bergmann og Valka frá Íbishóli sem eru með hæstu einkunn ársins eða 7,25 í einkunn.
Birt með fyrirvara um að öll mót hafi skilað sér inn til SportFengs.
Gæðingaskeið PP1 – Fullorðinsflokkur
| Nr. | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Elvar Þormarsson | Fjalladís frá Fornusöndum | 8,88 |
| 2 | Jakob Svavar Sigurðsson | Ernir frá Efri-Hrepp | 8,50 |
| 3 | Guðmar Freyr Magnússon | Brimar frá Varmadal | 8,50 |
| 4 | Árni Björn Pálsson | Álfamær frá Prestsbæ | 8,42 |
| 5 | Auðunn Kristjánsson | Penni frá Eystra-Fróðholti | 8,25 |
| 6 | Páll Bragi Hólmarsson | Vörður frá Hafnarfirði | 8,17 |
| 7 | Jóhann Kristinn Ragnarsson | Þórvör frá Lækjarbotnum | 8,13 |
| 8 | Davíð Jónsson | Irpa frá Borgarnesi | 8,00 |
| 9 | Sigurður Vignir Matthíasson | Léttir frá Eiríksstöðum | 7,92 |
| 10 | Klara Sveinbjörnsdóttir | Glettir frá Þorkelshóli 2 | 7,88 |
Gæðingaskeið PP1 – Ungmennaflokkur
| # | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Benedikt Ólafsson | Leira-Björk frá Naustum III | 7.63 |
| 2 | Matthías Sigurðsson | Tign frá Fornusöndum | 7.13 |
| 3 | Arnar Máni Sigurjónsson | Heiða frá Skák | 7.08 |
| 4 | Kristján Árni Birgisson | Máney frá Kanastöðum | 7.04 |
| 5 | Þorvaldur Logi Einarsson | Skíma frá Syðra-Langholti 4 | 6.88 |
| 6 | Embla Þórey Elvarsdóttir | Tinni frá Laxdalshofi | 6.83 |
| 7 | Þórey Þula Helgadóttir | Sólon frá Völlum | 6.83 |
| 8 | Herdís Björg Jóhannsdóttir | Snædís frá Forsæti II | 6.67 |
| 9 | Védís Huld Sigurðardóttir | Hrafnhetta frá Hvannstóði | 6.58 |
| 10 | Arnar Máni Sigurjónsson | Frekja frá Dýrfinnustöðum | 6.50 |
Gæðingaskeið PP1 – Unglingaflokkur
| # | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Jón Ársæll Bergmann | Valka frá Íbishóli | 7.25 |
| 2 | Herdís Björg Jóhannsdóttir | Snædís frá Forsæti II | 7.21 |
| 3 | Matthías Sigurðsson | Tign frá Fornusöndum | 7.08 |
| 4 | Dagur Sigurðarson | Tromma frá Skúfslæk | 6.54 |
| 5 | Sara Dís Snorradóttir | Djarfur frá Litla-Hofi | 6.33 |
| 6 | Þórgunnur Þórarinsdóttir | Gullbrá frá Lóni | 6.13 |
| 7 | Kristín Eir Hauksdóttir Holake | Bragi frá Skáney | 5.88 |
| 8 | Sigurbjörg Helgadóttir | Hörpurós frá Helgatúni | 5.38 |
| 9 | Eva Kærnested | Hvanndal frá Oddhóli | 5.33 |
| 10 | Elín Þórdís Pálsdóttir | Vörður frá Hafnarfirði | 5.13 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH