Bróðir besti – Abraham frá Lundum
Ungur ættgöfugur stóðhestur vakti talsverða athygli á Reiðhallarsýningu Vestlendinga sem fram fór í Borgarnesi um síðustu helgi. Þetta var Abraham frá Lundum enn einn gæðingurinn undan Auðnu frá Höfða, en faðir hans er Vilmundur frá Feti.
Blaðamanni Eiðfaxa hafði samband við Jakob Sigurðsson þjálfara Abrahams og lék forvitni á að vita meira um þennan fola.
„Hrossin undan Auðnu eru öll góð að mínu mati en ólík samt. Þessi foli hefur tamist mjög vel í vetur en einnig breyst talsvert mikið í útliti. Hann var bara venjulegur foli í útliti í fyrra en hefur þroskast mikið í vetur og tel ég að hann gæti fengið um 8,20 fyrir sköpulag í kynbótadómi, en hann er mjög framfallegur og bolléttur eins og bræður hans.“ Segir Jakob en þegar hann er spurður um ganglag og persónueinkenni hestsins segir hann „þetta verður flugvakur hestur og kemur mér ekkert á óvart ef það yrði hans besta gangtegund, töltið er mjög gott og viljinn var fljótur að koma. Hann er t.d. talsvert fylgnari sér á skeiði en Alur bróðir hans. Það er stefnan að sýna hestinn í vor ef að ég klúðra honum ekki fram að því“ segir Jakob og hlær við.
Það verður spennandi að fylgjast með þessum ættstóra fola og ljóst er að Auðna heldur áfram að skila mjög áhugaverðum afkvæmum en nú er á fjórða vetur Kvistssonur undan henni í tamningu í Steinsholti sá heitir Alexander og segir Jakob hann temjast mjög vel og að honum lítist vel á það verkefni. „Hvort hann verði sýndur í vor verður að koma í ljós en afkvæmi Auðnu eru best á fimmta og sjötta vetur og því spurning hvort rétt sé að bíða eitt ár með hann“ bætir Jakob við.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH