Reiðnámskeið á Iðavöllum
Sif Jónsdóttir, Hólamenntaður reiðkennari í Fáki hefur hug á að halda reiðnámskeið í Hestamiðstöð Austurlands á Iðavöllum í nóvember. Um er að ræða frumtamninganámskeið, en einnig er í boði námskeið í almennri reiðmennsku, einkatímar og síðast en ekki síst sýnikennsla. Námskeiðið er haldið í samstarfi við Dalahöllina á Norðfirði, en þar mun Sif einnig kenna sömu helgar.
Fyrsta námskeiðshelgin er 3. nóvember, en fyrirhugaðar eru 3 helgar í sama mánuði. Þeir sem hafa áhuga eða leita sér frekari upplýsinga er bent á að skrá sig hjá Einari Ben á [email protected] eða í síma 896-5513
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH