Tígurlegar konur á Bellutölti
Hestamannafélagið Léttir hélt sitt árlega kvennatölt þann 1. maí síðastliðinn.
„Mikil stemming er í kringum þetta mót og var þemað í ár „tiger“. Öll umgjörð mótsins var Létti og Bellunum til sóma, Fúsi þulur fór á kostum og dómararnir ásamt öðru starfsfólki voru frábærir.48 konur skráðu sig til leiks í 3 styrkleikaflokkum og mættu þær prúðbúnar og tilbúnar í slaginn. Skemmtilegt var að sjá hve margar konur voru að keppa í fyrsta sinn og frábært hvað sumar gegnu langt í búningavali sínu. 5 efstu konurnar í hverjum flokki riðu svo til úrslita og fengu vegleg verðlaun en auk hefðbundinna verðlauna fengu þær íslenska hönnun sem gefin var af Hugrúnu Ívarsdóttur,“ segir í frétt frá Létti.
Úlfhildur Sigurðardóttir sigraði búningakeppnina en úrslit kvennatöltsins urðu eftirfarandi:
T7 – 2. flokkur
1 María Björk Jónsdóttir / Einir frá Ytri-Bægisá I 6,58
2 Jónína Sverrisdóttir / Glóð frá Hólakoti 6,33
3 Ester Anna Eiríksdóttir / Nöf frá Njálsstöðum 5,75
4 Sigríður Hrefna Jósefsdóttir / Styrmir frá Akureyri 5,50
5 Ólöf Jósefsdóttir / Tjáning frá Þrastarhóli 5,25
T3 – 2. flokkur
1 Auður Hallsdóttir / Ósk frá Ysta-Gerði 6,50
2 Sigríður K Sverrisdóttir / Saga frá Skriðu 6,44
3 Erla Brimdís Birgisdóttir / Sálmur frá Skriðu 6,06
4 Andrea Þorvaldsdóttir / Teista frá Akureyri 5,94
5 Hjördís Bessadóttir / Villandi frá Feti 5,78
T3 – 1. flokkur
1 Úlfhildur Sigurðardóttir / Sveifla frá Hóli 6,83
2 Helga Árnadóttir / Skriða frá Hlemmiskeiði 6,78
3 Anna Catharina Gros / Sátt frá Grafarkoti 6,72
4-5 Þóra Höskuldsdóttir / Sólfaxi frá Sámsstöðum 6,28
4-5 Sandra Marin / Stikla frá Efri-Mýrum 6,28
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH