Bændadraumurinn að veruleika

  • 30. júlí 2015
  • Fréttir
Ræktunarbúið Sámsstaðir í Eyjafirði.

Á Sámsstöðum í Eyjafirði eru þau hjónin Höskuldur Jónsson og Elfa Ágústsdóttir með ræktun sína. “Allar okkar hryssur sem við erum með í ræktuninni eru eyfirskar” segir Höskuldur og bætir við að það hafi verið algjör til viljun. “Flestar hryssurnar eru ættaðar frá Sigurði á Höskuldsstöðum eða Sigga Óskars. Þó er ein hryssan, Urð frá Bólstað, komin úr Bárðardal en er þó af eyfirskum ættum,“ segir Höskuldur. Þoka frá Akureyri og Orka fra Höskuldsstöðum eru einu ræktunarhryssurnar á búinu í dag sem Höskuldur og Elfa hafa keypt sér, allar hinar hafa komið úr þeirra eigin ræktun. Allar þeirra ræktunarhryssur eru með fyrstu verðlaun og eiga það sameiginlegt að búa yfir miklu rými á eitt hverjum gangi, sumar vakrar en aðrar rúmar á tölti.

Viðtal við hjónin má nálgast í 7.tbl. Eiðfaxa sem kom út í vikunni. Hér er hluti úr viðtalinu.

Áhugi þeirra hjóna á ræktun telur Höskuldur hafa sprottið út frá bændadraumnum. “Það blundaði alltaf í manni að verða “alvöru“ bóndi og þó það hafi ekki orðið þá rættist hluti af draumnum við kaupin á Sámsstöðum sem eru 20 km. sunnan Akureyrar. Þó að við búum á Akureyri upplifir maður alla þessa sveitastemmingu þar,” segir Höskuldur en á Sámsstöð um eru þau með uppeldi fyrir öll sín hross, búin að gera upp íbúðarhúsið, nota gamalt fjós þar sem hægt er að hýsa hross ef þarf og nota við vinnu með stóðið. Höskuldur heyjar jörðina sjálfur og nægir uppskeran bæði fyrir reiðhrossin í bænum og útiganginn á Sámsstöðum.

Hægt er að gerast áskrifandi að Eiðfaxa í síma 511 6622 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link