Geert Íslandsmeistari
Íslandsmótið í Járningum fór fram 12. nóvember hjá Eldhestum.
Keppnin fór þannig fram að járnaðir voru tveir fætur, fram fótur og gagnstæður afturfótur. Keppendur voru síðan dæmdir með tilliti til gæða járninganna. Dæmt var í tvennu lagi, annarsvegar tálgun og plönun á hóf, snyrting hóftungu og hófbotns og hinsvegar loka frágangur þ.e.a.s. frágangur, lögun og staðsetning á skeifu, neglingar og hnykkingar.
Að lokinni spennandi keppni þar sem mjög mjótt var á munum á milli manna var niðurstaðan eftirfarandi:
1. Sæti Geert Cornelis
2. Sæti Atli Már Atlason
3. Sæti Leó Hauksson
Daniel van der Blij var Dómari
Járningarmannafélagið þakkar Eldhestum og Mustad fyrir veittan stuðning
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH