Margt spennandi í kortunum hjá Félagi tamningamanna.
„Mig langar að gefa hestaunnendum innsýn í þau verkefni sem FT er að vinna í, en við munum kynna þau betur síðar.
Til að koma á móts við reynda, starfandi tamningamenn 25 ára og eldri er stefnt er á fjarnámsleið FT, einnig stendur til að uppfæra meistarapróf, hvort tveggja yrði auglýst með fyrirvara, tamningapróf á haustdögum, meistarapróf síðsumar ág,sept. Einnig stefnum við á endurmenntunardaga í haust og svo sérstakan endurmenntunardag reiðkennara.
Okkur langar að ná betur sambandi við og virkja FT félaga erlendis, hafa félagsfund einhversstaðar miðsvæðis í haust og jafnvel í framhaldi stofna FTevropa.“
Kær kveðja með ósk um frábært landsmót hestamanna
F.h stjórnar Ft
Súsanna Sand Ólafsdóttir
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson