Ævintýri á hestbaki frumsýnd á RIFF

  • 25. september 2026
  • Fréttir

Þórgunnur og Djarfur frá Flatatungu á flugaskeiði í +35C° í úrslitum í fimmgangi á HM í Sviss 2025. Mynd: Jón Björnssson.

Heimildamyndin Ævintýri á hestbaki (e. Ride of a Livetime) verður frumsýnd á RIFF (Reykjavík International Film Festival) sunnudaginn 27. september kl . 11 í sal 2 í Háskólabíói.

Myndinn fjallar um hestakonuna Þórgunni Þórarinsdóttur og fjölskyldu hennar og keppnishest hennar Djarf frá Flatatungu. Fylgst með Þórgunni frá því að hún er 15 ára hestastelpa á Sauðárkróki þar til hún keppir fimm árum síðar til úrslita í fimmgangi ungmenna á Heimsleikum íslenska hestsins í Sviss sumarið 2025.

Myndin verður síðan áfram á dagskrá RIFF þar til hátíðinni lýkur.  Árni Gunnarsson, kvikmyndagerðarmaður leikstýrir og framleiðir myndina auk hans komu fjöldi fagfólks að gerð myndarinnar.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link