Það er að lifna yfir hestafólki!
Eiðfaxi er að skanna umhverfið og spjalla við fólk um líðandi stund. Hann kom við í versluninni TopReiter…
Þar var Óli Herbertsson að afgreiða hestafólk.
Er að færast líf í hestamenn?
„Já, maður verður mikið var við það að hestamenn eru að taka á hús og eru margir hverjir að setja í gang, enda farið að kólna aðeins“ sagði Óli.
Hvað er það helst sem fólk er að versla?
„Skeifur náttúrulega og járningatæki og svo er mikil sala í allskyns fæðubótarefnum fyrir hrossin. Margir eru að fá sér vítamínfötur í hrossin sem eru úti, fólk vill greinilega styrkja hrossin eins og hægt er.
Nú og svo er það vetrarfatnaðurinn sem selst mikið á þessum árstíma“ Sagði Óli og sneri sér að næsta viðskiptavini.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH