Þrjár jafnar í 1 sæti
Sætaröðun dómara þurfti til að skera úr um Íslandsmeistara í ungmennaflokki. Jafnar í 1-3 sæti með einkunnina 7,56, eftir að allar einkunnir höfðu verið lesnar, voru Ásdís Ósk Elvarsdóttir, Gyða Sveinbjörg og Sylvía Sól.
Það var mikil spenna hér í Víðidalnum þegar sætaröðun dómara hafði verið lesinn upp.
Það endaði þó þannig að Ásdís ósk og Gyða Sveinbjörg urður jafnar í 2-3 sæti og Íslandsmeistari varð Sylvía Sól Magnúsdóttir og Reinu frá Hestabrekku.
Sylvía er hástökkvari því hún sigraði b-úrslit í gær og endaði sem Íslandsmeistar vel að verki staðið.
Gyða Sveinbjörg er íslandsmeistari í samanlögðum fjórgangsgreinum á Skálmöld frá Eystra-Fróðholti.
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Sylvía Sól Magnúsdóttir Reina frá Hestabrekku 7,56
2-3 Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir Skálmöld frá Eystra-Fróðholti 7,56
2-3 Ásdís Ósk Elvarsdóttir Koltinna frá Varmalæk 7,56
4 Benjamín Sandur Ingólfsson Mugga frá Leysingjastöðum II 7,39
5 Guðmar Freyr Magnússon Rosi frá Berglandi I 7,17
6 Atli Freyr Maríönnuson Óðinn frá Ingólfshvoli 7,11
7 Thelma Dögg Tómasdóttir Marta frá Húsavík 7,06
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH