Áskorendamót Riddara Norðursins

  • 20. mars 2014
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Fimm lið skráð til leiks

Áskorendamót Riddarar Norðursins verður haldið í reiðhöllinni Svaðastaðir laugardaginn 29. mars 2014. Mótið hefst kl 20:00 og miðinn kostar 1000 kr. Áskorendamót Riddarana hefur verið haldið árlega síðan 2005, utan við eitt ár. Þetta er því áttunda mót Riddarana.

Liðin sem keppa í ár eru:
Narfastaðir
Lúlli Matt
Vatnsleysa 
Skörðugil
Riddarar Norðursins

Í fyrra kepptu sömu lið og fóru Narfastaðir heim með bikarinn eftisótta. Vitað er að öll lið munu tefla fram sínum bestu hestum og knöpum. Keppnin er mikil og til mikils að vinna. 

Keppnisfyrirkomulag:
Riddarar Norðursins hafa skorað á 4 lið til keppni við sig. Keppt er í fjórgangi, fimmgangi, tölti og skeiði. Einungis eru riðin úrslit.
Einn knapi úr hverju liði keppir í hverri grein.

Riddarar Norðursins eru þekktir fyrir mikla gestristni og sönggleði,  þeir gera því sitt besta á hverju ári til að búa til gott mót og gera kvöldið sem skemmtilegast. Riddararnir vonast að sjálfsögðu til að sjá sem flesta í reiðhöllinni Svaðastaðir, því eins og sagt er þá er maður manns gaman og alltaf betra að hafa vígalega hesta til að horfa á.


Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link