Smalamót Harðar á laugardag
Laugardaginn 5. febrúar kl. 13 verður Smalamót Harðar haldið í Harðarreiðhöllinni í Mosfellsbæ.
Í fréttatilkynningu frá Herði segir að smalamótið verði stórhátíð, skemmtilegt og áhorfendavænt. „Í stuttu máli fer það þannig fram að sett verður upp þrautabraut í reiðhöllinni og sá sem ríður hana hraðast vinnur. Refsistig eru gefin ef hlutar brautarinnar eru felldir. Þetta er góðgerðarmót og rennur öll innkoman til krabbameinssjúkra barna. Það eru þær Súsanna Katarína og Harpa Sigríður, ungir knapar hér í Herði sem eiga hugmyndina að mótinu, stilla því upp og smíða verðlaunagripi. Knapar úr Meistaradeildinni mæta og fara í einvígi við fljótustu keppendurnar. Öll vinna við mótið verður í sjálfboðavinnu. Við hvetjum alla til að mæta í reiðhöllina þennan dag, horfa á frábæra skemmtun og styrkja gott málefni, aðgangseyrir er frjáls og greiðist beint í söfnunarkassa krabbameinssjúkra barna sem verða á staðnum.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH