Nú árið er liðið í aldanna skaut, og aldrei það kemur til baka

  • 1. janúar 2024
  • Aðsend grein
Nýárskveðja frá Guðna Halldórssyni formanni LH

Nú árið er liðið í aldanna skaut, og aldrei það kemur til baka

Það er óhætt að segja að árið 2023 hafi verið okkur hestafólki gjöfult, gæfuríkt og skemmtilegt. Árangur samstöðu, samvinnu og metnaðar var sjáanlegur á öllum sviðum og náði hápunkti á HM íslenska hestsins í Hollandi, hvar íslensku landsliðin stóðu upp úr og báru af öðum liðum, hvernig sem á það var litið.
Við hestafólk bárum gæfu til þess að leggja að mestu til hliðar deilu- og þrætumál á árinu og stóðum saman í þeim málum og á þeim sviðum sem máli skiptu. Slík samstaða og sameining gerir allt starf skemmtilegra og árangursríkara og fyrir það ber að þakka.
Sem formaður Landssambands hestamannafélaga hefur þetta verið einstaklega ánægjulegt og gefandi ár, sem einkenndist af góðum og uppbyggilegum samskiptum við hestafólk og aðdáendur íslenska hestsins um allan heim.

Hvað boðar nýárs blessuð sól?

Þó að framtíðin sé óráðin er í upphafi árs góður tími til að setja sér markmið, láta sig hlakka til og gera sér vonir um skemmtilegt ár.
Ég geri mér vonir um frábært hestaár þar sem hápunkturinn verður án efa stórglæsilegt Landsmót sem hefst eftir nákvæmlega 6 mánuði í Víðidal í Reykjavík. Landsmót er ávallt stærsti og skemmtilegasti viðburður okkar hestafólks og ljóst að þar munum við leiða saman okkar allra bestu hesta, hafa gaman, kynnast nýju fólki og hitta gamla vini.
Þá er hægt að láta sig hlakka til hestaferða sumarsins og útreiðatúra bæði að sumri og vetri. Þó að kuldinn næði um daladætur og bíti í kinnar nú á hrútmánuði þá er fátt skemmtilegra en að beisla góðan hest og láta kasta toppi á frosnu hjarni mót hækkandi sól. Njótum hvers dags með hestunum okkar, við vitum aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér.

Ég vil þakka fyrir frábært samstarf og samskipti við hestafólk á árinu 2023 og hlakka til að hitta ykkur sem flest á árinu 2024.

Skrauthólum á Kjalarnesi
Á nýársdegi 2024
Guðni Halldórsson formaður LH

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link