Falleg orð duga ekki ein og sér
Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra við setningu Landsmóts Mynd: Freydís Bergsdóttir
Við setningu Landsmóts hestamanna 9. júlí sl. sagði menningar-, háskóla- og nýsköpunarráðherra að íslenski hesturinn væri hluti af sjálfsmynd þjóðarinnar, sögu hennar, menningu og atvinnulífi. Það eru orð sem allir hestamenn geta tekið undir.
En orð verða að fylgja verkum.
Fyrir örfáum vikum samþykkti Alþingi samgönguáætlun sem heldur fjárframlögum til reiðvega óbreyttum næstu fimmtán árin. Það þýðir í raun áframhaldandi rýrnun á þeim innviðum sem tugþúsundir landsmanna treysta á til útivistar, íþróttaiðkunar og öruggra samgangna.
Það er auðvelt að lofa íslenska hestinn á hátíðardegi.
Það sem skiptir máli er hvað gert er daginn eftir.
Ef íslenski hesturinn er raunverulega hluti af sjálfsmynd þjóðarinnar, þá eiga stjórnvöld að sýna það í verki með því að byggja upp og viðhalda reiðvegakerfi landsins – ekki láta það rýrna ár eftir ár.
Yfirlýsing hestamanna um samgönguáætlunina hefur fengið mjög jákvæð viðbrögð. Það kemur ekki á óvart. Fólk sér muninn á hátíðarræðum og raunverulegum ákvörðunum.
Við biðjum ekki um innantómt lof. Við biðjum um að orð og verk fari saman.
Bestu kveðjur
Halldór H. Halldórsson
f.v. formaður Ferða- og samgöngunefndar LH
Falleg orð duga ekki ein og sér
Guðmar Hólm þrefaldur Íslandsmeistari
Dalvar jafnar heimsmet Viðars