Fjölbreytt úrval í mat og drykk á Landsmóti
Það er ávallt nóg umleikis í skipulagningu Landsmóts síðustu mánuðina enda aðeins rétt um þrír mánuðir þangað til veislan hefst. Að undanförnu hafa starfsmenn verið að ganga frá samningum er lúta að hinum ýmsu verkþáttum.
Í vikunni var gengið frá veigamiklum samningum varðandi veitingamálin og óhætt að fullyrða að fjölbreytnin verði í fyrirrúmi í mat og drykk á Vindheimamelum í sumar. Ölgerðin er aðaldrykkjavörubirgi Landsmóts 2010 enda hefur samstarf Landsmóts við fyrirtækið verið með eindæmum gott síðustu mót. Við lofum þó að ekki verði einungis ástarsamband Egils maltsins og appelsíns á boðstólum enda Ölgerðin með afar fjölbreytta drykkjarvörulínu.
Útboði veitinga er einnig lokið og munu sex veitingaaðilar sjá um að enginn verði svangur í brekkunni. Aðalveitingaaðili í stóra samkomu- og veitingatjaldinu er Veislumúlinn undir vaskri stjórn þeirra Jóa og Brynjars. Hamborgarabúllan og Pizzavagninn mæta nú einnig aftur til leiks eftir að hafa hvílt sig í tvö ár eftir örtröðina á Hellu 2008.
Asískur matur verður einnig á boðstólum sem og kjötsúpa og margt fleira. Án vafa mun það gleðja margan kaffisjúklinginn að hinn eini sanni Kaffibíll verður á staðnum en hann skartar, hvorki meira né minna en tveimur Íslandsmeisturum í kaffigerð.
Eins og venja er á íslenskum sveitaheimilum; mun enginn fara svangur né þyrstur frá borðum á Vindheimamelum í sumar!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH