Sleipnisbikarhafi í sæðingum
Sleipnisbikarhafinn, Álfur frá Selfossi, verður í sæðingumhúsi að Austurási við Selfoss fram til 20. júlí en þá fer hann í girðingu í Austvaðsholti. Allar nánari upplýsingar hjá Christinu Lund í síma 778-0508 og Röggu í síma 664-8001 eða á netfangið, [email protected]. Fyrri pantanir óskast staðfestar.
Alls hafa 59 af afkvæmum Álfs, fjögurra ára og eldri, hlotið fullnaðardóm. Álfur fer utan til Noregs í haust.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH