Þórarinn hefur leik
Næst á dagskrá er keppni í slaktaumatölti en það er Þórarinn Ragnarsson og Rosi frá Litlu-Brekku sem ríða á vaðið. Margir sterkir hestar eru skráðir til leiks þ.á.m. sigurvegarar fjórgangsins Jakob S. Sigurðsson og Júlía frá Hamarsey en þau urðu einnig íslandsmeistarar í greininni síðasta sumar. Merkilegt er að öll pörin sem voru í úrslitum í fjórgangnum eru skráð til leiks fyrir utan Aðalheiði og Óskar frá Breiðsstöðum en Aðalheiður mætir með Kinnskæ frá Selfossi í þetta skiptið. Hér fyrir neðan er hægt að sjá ráslistann.
Keppni hefst á slaginu 19:00 en húsið opnar kl. 17:00. Eins og áður verða veitingar í boði en í þetta skiptið verður boðið upp á reykta hunangsskinku með brúnuðum kartöflum, hrásalati og rjómalagaðri sósu. Við hvetjum því alla til að mæta snemma í höllina !
Ráslisti
Nr. Knapi Hestur
1 Þórarinn Ragnarsson Rosi frá Litlu-Brekku
2 Sigurður Vignir Matthíasson Laufey frá Seljabrekku
3 Berglind Ragnarsdóttir Ómur frá Brimilsvöllum
4 Janus Halldór Eiríksson Pegasus frá Strandarhöfði
5 Teitur Árnason Brúney frá Grafarkoti
6 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Kinnskær frá Selfossi
7 Ásmundur Ernir Snorrason Frægur frá Strandarhöfði
8 Olil Amble Goði frá Ketilsstöðum
9 Elin Holst Frami frá Ketilsstöðum
10 Sigurður Sigurðarson Magni frá Þjóðólfshaga
11 Sigurbjörn Bárðason Eldur frá Torfunesi
12 Árni Björn Pálsson Flaumur frá Sólvangi
13 Sigursteinn Sumarliðason Krókus frá Dalbæ
14 Gústaf Ásgeir Hinriksson Skorri frá Skriðulandi
15 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Sölvi frá Auðsholtshjáleigu
16 Viðar Ingólfsson Pixi frá Mið-Fossum
17 Hinrik Bragason Sólfaxi frá Sámsstöðum
18 Freyja Amble Gísladóttir Hryðja frá Þúfum
19 Bergur Jónsson Herdís frá Lönguhlíð
20 Jakob Svavar Sigurðsson Júlía frá Hamarsey
21 Ragnhildur Haraldsdóttir Þróttur frá Tungu
22 Hulda Gústafsdóttir Valur frá Árbakka
23 John Kristinn Sigurjónsson Gnýr frá Árgerði
24 Matthías Leó Matthíasson Sólroði frá Reykjavík
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH