Sigurbjörn þrefaldur knapi ársins
Sigurbjörn Bárðarson er knapi ársins 2010 og það með stæl, þrátt fyrir að vera aldursforseti þeirra sem tilnefndir voru, 58 ára. Fyrir utan að vera útnefndur knapi ársins, sem eru aðal verðlaunin og mesti heiðurinn, var hann einnig útnefndur skeiðknapi ársins og íþróttaknapi ársins. Enginn knapi hefur áður hlotið þrjá titla í knapavali LH. Bjarni Jónasson (Hesta-Bjarni yngri) á Sauðárkróki er kynbótaknapi ársins, Sigursteinn Sumarliðason gæðingaknapi og Hekla Katarína Kristinsdóttir efnilegasti knapinn.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson