Reynir að verja titilinn

  • 23. janúar 2012
  • Fréttir
Reynir að verja titilinn

„Staðan er góð,“ segir kempan Sigurður Sigurðarson, léttur í bragði en með miklu öryggi, þegar Eiðfaxi innir hann eftir hestakosti og væntingum fyrir Meistaradeildina í hestaíþróttum, sem hefst næstkomandi fimmtudag.

Sigurður er liðsstjóri Lýsis og sigurvegari síðustu Meistaradeildar, bæði í einstaklings- og liðakeppninni. Hann mætir með Loka frá Selfossi og hefur titil að verja. „Að sjálfsögðu reyni ég það, ekkert annað er á stefnuskránni. En það er margt sem þarf að ganga upp, þetta eru lifandi skepnur eins og allir vita. Ég geri mitt besta og vona að gæfan verði mér hliðholl.“

Eyjólfur Þorsteinsson er einnig í liði Lýsis en hann teflir fram hinum keppnisreynda fótaburðarhesti Klerki frá Bjarnanesi. Þriðji liðsmaður Lýsis er stórknapinn Sigurbjörn Bárðarson, en ekki er enn ljóst hvaða hest hann mætir með. „Tveir hörkugóðir koma til greina,“ segir Sigurbjörn og það hvín í símanum, því hann er að sjálfsögðu á hestbaki þegar Eiðfaxi nær tali af honum. „Annað hvort er það Penni frá Glæsibæ, sem ég mæti með, eða hinn jarpi Hlekkur frá Þingnesi, sem er í eigu Eyjólfs.“

Sigurður og Sigurbjörn eru þeir knapar sem hvað oftast hafa sigrað Meistaradeildina og það er ljóst að samkeppnin á milli þeirra er hörð, jafnvel þótt þeir séu í sama liði. „Jú, jú, það er bullandi samkeppni á milli okkar og ég mæti einbeittur til leiks. Mikið er spurt um hestakostinn, margir keppinautanna að forvitnast hverju maður teflir fram. Það er gott að vita af því að maður vekur enn með öðrum keppendum ugg, þá er þetta enn að virka hjá manni,“ segir Sigurbjörn og hlær.

Hin unga og efnilega Erla Katrín Jónsdóttir kemur inn sem varamaður liðsins í stað Sylvíu Sigurbjörnsdóttur sem fór yfir í lið Málningar/Ganghesta.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link