Stjórn Skagfirðings sendir frá sér yfirlýsingu
Á vef Hestamannafélagsins Skagfirðings er að finna yfirlýsingu stjórnar félagsins í kjölfar bréfaskrifta Jóns Þorbergs Steindórssonar, fyrrum fulltrúa í keppnisnefnd LH. Í bréfum sínum gagnrýnir hann vinnubrögð keppnisnefndar og stjórn LH. Berglind Karlsdóttir, framkvæmdarstjóri LH, svaraði Jóni Þorbergi skömmu síðar.
Upphaf málsins má rekja til þess að tímar í 100 metra skeiði, sem settir voru í skeiðgreinum á félagsmóti Sörla, voru ekki birtir á stöðulistum. Það er skoðun Jóns Þorbergs að á sömu forsendum ættu tímar á fleiri mótum ekki að vera metnir löglegir á stöðulistum, nefnir hann m.a. því til stuðnings WR mótið á Hólum.
Hestamannafélagið Skagfirðingur hélt WR mótið á Hólum og í yfirlýsingu frá félaginu segir m.a.:
„Í fyrrnefndum skrifum beinir viðkomandi spjótum sínum sérstaklega að ákveðnu móti, svokölluðu ”Hólamóti” og ákveðnum einstaklingum. Hann gerir meðal annars tortryggilegt að sami aðili hafi verið mótsstjóri á WR móti, sitji í keppnisnefnd LH og stjórn LH. Þessi aðili, sem hann nefnir þó aldrei á nafn, er einn af okkar félagsmönnum. Um er að ræða ungan félagsmann sem þó hefur unnið lengi að sjálfboðaliðastörfum, mótahaldi og fleiru í þágu félagsins.
Á WR mótinu á Hólum var umræddur einstaklingur einn af mótsstjórum og er bréfritari mjög upptekinn af framkvæmd þess móts. Mótið hefur verið yfirfarið af keppnisnefnd LH og fleirum og telst löglegt, einnig hefur yfirmaður WR-skráninga hjá FEIF staðfest þá niðurstöðu og telur ekki ástæðu til að gera athugasemd við framkvæmd mótsins.
Mótið fór löglega fram og mótsskýrslan er rétt skráð í Sportfeng eins og hefur verið staðfest af FEIF. Hvað varðar hestamannafélagið Skagfirðing er þessu máli lokið. Við horfum björtum augum til móta tímabilsins og vonum að sjálfboðaliðar haldi áfram að leggja sitt af mörkum fyrir félög sín,“
Yfirlýsingunni frá stjórn hestamannafélagsins fylgir einni yfirlýsing frá Unni Rún Sigurpálsdóttur sem var mótstjóri Hólamótsins. Þar verst hún ásökunum Jóns en í opnu bréfi hans gerir hann athugasemdir við aðkomu hennar og annarra þegar verið er að fara yfir þessi mál en nafngreinir hana ekki. Telur hann tengda aðila eigi að stíga til hliðar þegar teknar eru ákvarðanir sem þessar.
„Undirrituð var einn af mótsstjórum á WR mótinu á Hólum og Jón Þorberg er mjög upptekin af í gagnrýni sinni og mínum mörgu höttum í starfsemi fyrir hestamenn landsins.
Ég viðurkenni fúslega að ég er enginn sérfræðingur í mótahaldi, er alltaf að læra og fús til að taka við leiðbeiningum og tilsögn manna eins og hans, sem eru orðnir sérfræðingar í mótahaldi og öllu sem snýr að regluverki hestamennskunnar. Meðan á lærdómsferli mínum stendur hef ég gert mistök og mun örugglega eiga það á hættu þar til ég telst fullnuma í þessum málum.
Þegar upp kom sú staða að dómari mótsins á Hólum hélt því fram að ekki væri heimild til að nota hlaupagæslumenn á mótum og öll sæti þyrftu að vera skipuð dómurum, hafði ég samband við dómara um að setja nafn sitt við mótið, sem var gríðarlega vanhugsað af minni hálfu. Ég harma það að kappið hafi borið mig ofurliði og biðst innilega velvirðingar á þessari framhleypni minni og beini þeirri afsökunarbeiðni fyrst og fremst til þeirra sem þar blönduðust í málið. Þetta var þó, sem betur fer, ekki mikill skaði fyrir félagið mitt eða mótið, þar sem í ljós kom að framkvæmd mótsins var lögleg og því ekki þörf á óvönduðu og óásættanlegu vinnulagi, sem reyndari samstarfsfélagar mínir hefðu hvort eð er ekki samþykkt. Ég hef lært mína lexíu af þessu og fer þetta klárlega í reynslu- og þekkingarbankann.“ segir Unnur Rún í tilkynningu hestamannafélagsins Skagfirðings.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH